IcelandicEnglishTangarhöfða 6 • 112 Reykjavík • Sími 550 3800 • Fax 550 3875 • Veffang www.barter.is • Netfang vn@barter.is
Aðalsíða Vöruskipti Fyrirtækið Eyðublöð Netbanki VN Vefkort
Hvað eru vöruskipti? Vöru- og þjónustuskrá VN aðilar Smáauglýsingar
Ökutæki í vöruskiptum Vöru- og þjónustuflokkar Nýir VN aðilar Senda smáauglýsingu

Traust vöruskipti - VN opnar þér fleiri leiðir!

Hvað vinnst með VN aðild?
Fyrirtæki sem stunda vöruskipti hafa staðið frammi fyrir þeim vanda að oft er erfitt að finna aðila sem bæði á vöruna sem vantar og getur í staðinn tekið við þeirri vöru sem í boði er. Þróuð hefur verið leið í vöruskiptum sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga slík viðskipti án þess að þessi pörun eigi sér stað.

Viðskiptanetið hf. er vöruskiptmiðlun sem veitir þessa þjónustu á íslenskum markaði. VN heldur vöruskiptabókhald fyrir aðildarfyrirtæki og miðlar til þeirra upplýsingum um vöru- og þjónustuframboð. Miðlarar, tengdir gagnabanka sem heldur utan um viðskiptastöðu og vöruframboð aðildarfyrirtækja, veita upplýsingar og viðskiptaheimildir. Að auki eru upplýsingar um eftirspurn og framboð á vöru og þjónustu aðgengilegar á Internetinu og í reglulega útgefnum prentmiðlum.

Ávinningur VN aðildar er margþættur og mismunandi eftir fyrirtækjum!

  • Aukin sala
  • Bætt lausafjárstaða
  • Öryggi í vöruskiptum
  • Aðgangur að markaðskerfi og aukin viðskiptatengsl
  • Vöruskipti milli landa
  • Hagkvæm lán
  • VN kortin
    Aðili sem notar vöruskiptamiðlun VN eignast eigin VN bankareikning.
    Þegar keypt er í vöruskiptum er notað sérstakt VN greiðslukort. Kortið er gefið út á vöruskiptareikning VN aðila. Viðskiptin eru jafn einföld þegar VN kortið er notað og almennt þekkist í kortaviðskiptum með debet og kredit kort.

    Posar, nótur og netbanki
    Auðvelt er að eiga rafræn viðskipti á vöruskiptaneti VN með posa.
    Hægt er að leigja eða kaupa posa sem taka VN kortin auk allra annarra greiðslukorta (VISA / EURO).

    Í gegnum netbanka Viðskiptanetsins getur þú millifært, skoðað stöðu, reikningsyfirlit og haldið utan um viðskipti þín í VN.

    Ef seljandi notar ekki posa fyllir hann út sölunótu VN þegar viðskiptin fara fram.
    Á sölunótuna verður að færa eftirfarandi til þess að færsla geti átt sér stað: Kortanúmer, nafn kaupanda og gildistími korts, heimildarnúmer, dagsetning, VN númer og nafn seljanda, undirskrift kaupanda og upphæð viðskiptanna.

    Skýrar reglur - allt á hreinu!
    Úttekt viðskiptaaðila
    Vöru- eða þjónustuúttekt viðskiptaaðila hjá vöruskiptaneti VN er takmörkuð við úttektarheimild á viðskiptareikningi hans. Verði skuld á viðskiptareikningi viðskiptaaðila vegna vöru- og þjónustuúttektar meiri en úttektarheimild getur VN krafið hann um greiðslu á mismuninum í peningum.

    Yfirdráttur og vöruskiptalán
    Viðskiptaaðilar geta sótt um lán í vörubanka VN. Yfirdráttarlánið getur numið allt að 4-6 mánaða veltu í vörubanka VN. Á móti eru þau skilyrði sett að endurgreiðslugeta sé fyrir hendi í vöruskiptum og að tryggingar séu viðunandi.

    Vörur og þjónusta í VN
    VN skuldbundir sig til að afla nýrra viðskiptaaðila sem hafa á boðstólum vöru og þjónustu sem uppfyllir þarfir allra viðskiptaaðila VN. VN veitir upplýsingar um framboð vöru og þjónustu til að auðvelda viðskiptaaðilanum vöruskipti. Sé eftirspurn eftir vöru og þjónustu mikil eða framboð lítið má búst við að þjónusta VN verði takmörkuð. VN er einungis skuldbundið til að bjóða þær vörur og þjónustu sem fyrir hendi eru á vöruskiptaneti VN hverju sinni.

    Verð í vöruskiptum
    Viðskiptaaðili selur vöru og þjónustu á ríkjandi verði gegn inneign í formi vöru eða þjónustu hjá öðrum viðskiptaaðilum VN. Óheimilt er að hækka verð á vöru eða þjónustu þegar hún er boðin í vöruskiptum. Á vöruskiptaupphæð er VSK. Öll viðskipti skulu að jafnaði vera vöruskipti. Í sérstökum tilfellum geta viðskiptaaðilar í samráði við VN samið um að hluti sé greiddur með peningum og hluti í vöruskiptum. Þegar viðskipti eru að hluta í formi peninga áskilur VN sér rétt til þjónustugjalda á þann hluta einnig.

    Tryggingar á inneignum
    Tryggingar á inneignum aðilarfyrirtækja VN
    Reglur VN um útlán í vörubanka VN eru settar til að tryggja öryggi inneigna og heilbrigði kerfisins.

    Tryggingar
    Allir þeir aðilar sem sækja um yfirdráttarheimild á vörubanka VN þurfa að leggja fram tryggingar.

    Lánsupphæð
    Yfirdráttur fyrirtækja fari ekki yfir 4-6 mánaða veltu þeirra um vörubanka VN. Þetta tryggir veltuhraða í kerfinu og eykur líkur á að lántakendur hafi greiðslugetu í viðskiptum.

    Heimildarnúmer
    Seljanda ber að óska eftir heimildarnúmeri þegar hann selur á VN. Þetta gerist sjálfkrafa með posa.

    Tryggingasjóður
    Mánaðarlega greiða allir sem eru í skuld við vörubanka VN ákveðið hlutfall í tryggingasjóð VN. Þessi sjóður er sameiginleg eign allra aðila í VN og hefur Viðskiptanetið heimild til að ráðstafa úr honum ef tap verður á viðskiptum í kerfinu og til að auka öryggi viðskiptanna.

    Alþjóðleg vöruskipti
    Alþjóðleg viðskipti í vöruskiptum eru mjög lífleg og er talið að um helmingur heimsviðskipta séu vöruskipti eða ígildisviðskipti með einum eða öðrum hætti. Vöruskipti milli landa hafa til þessa verið óveruleg. Ástæðan er sú að ekki hefur verið nægjanlega skilvirkur farvegur fyrir þau.

    Viðskiptanetið er meðlimur í alþjóðlegum samtökum vöruskiptamiðlana (IRTA). Þau hafa stofnað vörubanka sem miðlar vöru og þjónustu milli vöruskiptamiðlana í heiminum á svipaðan hátt og VN miðlar vöru og þjónustu milli fyrirtækja á íslenskum markaði. Með tilkomu þessa alþjóðlega vörubanka hefur í raun skapast alþjóðlegur gjaldmiðill í vöruskiptum.

    Þjónusta Viðskiptanetsins
    VN heldur utan um viðskipti aðildarfyrirtækja. Jafnframt býr VN yfir öflugu upplýsinganeti sem stuðlar að auknum viðskiptum innan VN.

    Bókhaldsþjónusta
    VN heldur bókhald yfir vöruskipti aðildarfyrirtækja og sendir reikningsyfirlit mánaðarlega. Bókhaldsgögn eru afrituð daglega til geymslu á öruggum stað.

    Upplýsingaþjónusta
    VN sendir út fréttabréf mánaðarlega. Í því eru upplýsingar um fyrirtæki sem eru í viðskiptum hverju sinni og nýjustu fréttir af vöruskiptum. VN sendir upplýsingar á faxi vikulega, þar sem m.a. koma fram tilboð frá aðilarfyrirtækjum. Fjórum sinnum á ári er gefin út ítarleg Vöru- og þjónustuskrá, auk þess sem alltaf er hægt að leita upplýsinga á www.barter.is, viðskiptavakanum og í gegnum síma hjá þjónustufulltrúum VN.

    Vöruskiptamiðlun
    VN miðlar vöru og þjónustu milli aðildarfyrirtækja. Aðildarfyrirtæki fá aðgang að öflugu sölukerfi VN. Þjónustufulltrúar VN halda utan um gagnabanka um framboð og eftirspurn og veita upplýsingar úr honum.

    Vöru- og þjónustuúrval
    VN vinnur að öflun nýrra viðskiptavina sem hafa á boðstólum vörur og þjónustu sem eftirspurn er eftir.

    Sýningar og uppboð
    Viðskiptanetið stendur fyrir ýmsum uppákomum sem ætlaðar eru til kynningar á aðildarfyrirtækjum VN, jafnt út á við sem innan raða VN aðila
    Reglulega heldur Viðskiptanetið uppboð. Þar eru boðnar upp í vöruskiptum ýmsar vörur og listaverk. Góð reynsla er af þessum uppboðum, sem hafa verið fjölsótt. Á þeim vettvangi gefst tækifæri til að koma sér á framfæri, hitta væntanlega viðskiptavini og lyfta sér upp.

    Reglulega stendur VN fyrir Vörusýningu. Þar geta aðildarfyrirtæki VN kynnt þá vöru og þjónustu sem þau hafa upp á að bjóða.

    Annað slagið hittast VN félagar á veitingahúsi í boði VN. Þessi kvöld (Vöruskipti eftir vinnu) hafa mælst vel fyrir og stuðlað að auknum tengslum milli aðildarfyrirtækja.

      Prenta þessa síðu