|
||||||||||||||||||
![]() Tangarhöfða 6 • 112 Reykjavík • Sími 550 3800 • Fax 550 3875 • Veffang www.barter.is • Netfang vn@barter.is
|
||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Hvað eru vöruskipti?Flestir kannast við að hafa átt í vöruskiptum, að hafa keypt nauðsynlega vöru eða þjónustu með því að láta eigin afurð á móti. Augljóst hagræði er af vöruskiptum þar sem fyrirtækið nýtir umframafkastagetu sína eða umframbirgðir til kaupa á nauðsynlegum aðföngum. Betri nýting starfsfólks og framleiðslutækja næst og lausafé skerðist ekki. Fyrirtæki sem vilja stunda vöruskipti hafa staðið frammi fyrir þeim vanda að oft er erfitt að finna aðila sem bæði á vöruna sem vantar og getur í staðinn tekið við þeirri vöru sem í boði er. Í Bandaríkjunum hefur þróast ný leið í vöruskiptum sem gerir fyrirtækjum kleift að eiga vöruskipti án þess að þessi pörun eigi sér stað. Þriðji aðili eða vöruskiptamiðlun heldur þá utan um viðskiptin. Með þessu móti verða vöruskipti öruggari og auðveldari, þ.e. möguleiki opnast á að láta af hendi vöru til eins aðila og taka vöru af öðrum í staðinn. Stofnuð hafa verið alþjóðleg samtök vöruskiptamiðlana, International Reciprocal Trade Association, skammstafað IRTA sem hafa því hlutverki að gegna að setja staðla um þessi viðskipti og tengja vöruskiptamiðlanir þannig að vöruskipti geti átt sér stað milli miðlana og þar með milli landa. Viðskiptanetið hf. skammstafað VN er vöruskiptamiðlun, sem veitir þessa þjónustu á íslenskum markaði. VN er aðili að IRTA og fylgir stöðlum IRTA í viðskiptum, auk þess að eiga sæti í stjórn evrópudeildar samtakanna. VN heldur vöruskiptabókhald fyrir aðildarfyrirtæki og miðlar til þeirra upplýsingum um vöru- og þjónustuframboð. Miðlarar tengdir gagnabanka, sem heldur utan um viðskiptastöðu og vöruframboð aðildarfyrirtækja eru við símann og veita upplýsingar og viðskiptaheimildir. Að auki eru reglulega send út fréttabréf um breytingar á eftirspurn og framboði vöru og þjónustu. Peningar hafa verið hornsteinn viðskipta í heiminum og stuðlað að því að hver einstaklingur og hvert fyrirtæki getur einbeitt sér að því sem það gerir best og hámarkað þannig afköst sín og hagnað. Upplýsingaiðnaður nútímans gerir kleift að hverfa aftur í tímann og taka upp vöruskipti án þess að það hagræði hverfi, sem peningarnir hafa skapað. Sé hagkvæmt fyrir þitt fyrirtæki að stunda einhver vöruskipti er aðild að Viðskiptanetinu hf. góður kostur.
Hvernig fara viðskiptin fram?
Alþjóðleg vöruskipti Hin alþjóðlegu samtök vöruskiptamiðlana (IRTA) hafa nú stofnað vörubanka sem miðlar vöru og þjónustu milli vöruskiptamiðlana í heiminum á svipaðan hátt og VN miðlar vöru og þjónustu milli fyrirtækja á íslenskum markaði. Með tilkomu þessa alþjóðlega vörubanka hefur í raun skapast alþjóðlegur gjaldmiðill í vöruskiptum. Sem dæmi getur VN haft milligöngu um sölu til fyrirtækis t.d. í Bretlandi og nýtt þá vöruinneign, sem myndast til að kaupa af fyrirtækjum tengdum vöruskiptamiðlunum víðsvegar um heiminn. Þessi alþjóðlegi vörubanki var opnaður í ársbyrjun 1999. Í tengslum við opnun vörubanka IRTA hefur verið opnuð gagnrás á Internetinu til að hjálpa aðildarfyrirtækjum IRTA að miðla upplýsingum um framboð og þarfir í vöruskiptum. |
||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
| © Nordic Barter - webmaster@barter.is | ||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||